Starfsmenn félagsmiðstöðva

Starfsmenn félagsmiðstöðva

NÁMSKEIÐ FYRIR KARLKYNS STARFSMENN FÉLAGSMIÐSTÖÐVA

Dagsetningar: miðvikudaganna 15. og 22. febrúar 2023

Tímasetning: 17:00 – 20:00 

Mikilvægt er að mæta bæði skiptin. 

Staðsetning: Stígamót, Síðumúla 23 

Stígamót, miðstöð fyrir brotaþola kynferðisofbeldis, bjóða upp á námskeið fyrir karla sem vilja taka þátt í baráttunni gegn kynferðisofbeldi, nánar tiltekið ofbeldi karla gegn konum, kynsegin einstaklingum og öðrum jaðarsettum hópum. Námskeiðið er hugsað fyrir karla sem vilja taka umræðuna um kynbundið ofbeldi í sínu umhverfi, t.d. í vinahópum, fjölskyldu og vinnustöðum.Um er að ræða ítarlegt námskeið þar sem lögð er áhersla á að skoða fjölbreytt viðfangsefni sem varða þennan málaflokk með sérstaka áherslu á kynferðisbrot og ungmenni.  

Stígamót hefur frá upphafi lagt áherslu á að öll umræða um kynferðisofbeldi sé brotaþolavæn, þ.e. að tekið sé mið af reynslu og þörfum þeirra sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi. Þannig að baráttan gegn kynferðisofbeldi, gegn nauðgunarmenningu felur í sér að skapa nýja menningu, þar sem brotaþolar upplifa stuðning og að eiga rétt á að leita sér hjálpar og réttlætis. Menning sem einnig kallar og styður gerendur ofbeldis til að taka ábyrgð á því ofbeldi sem þeir hafa beitt.  

Á námskeiðinu verða eftirfarandi þemu tekin fyrir: birtingarmyndir kynferðisofbeldis, afleiðingar kynferðisofbeldis, kynjakerfið, karlmennskur, klámmenning, nauðgunarmenning, brotaþolavæn skólamenning, umræðan um gerendur og ábyrgðamenning. 

ÞÁTTTÖKUGJALD: 15.000 kr, 5000 kr fyrir námsfólk með kóðanum „skolafolk“.

Gengið er frá greiðslu í lok skráningarformsins. Við hvetjum þátttakendur til að athuga styrki frá stéttafélögum og atvinnurekendum.  

Fyrir vinnustaði: Það er hægt að skrá starfsmenn á námskeiðið með því að senda póst á  [email protected]. Einnig er boðið upp á að senda reikning beint á vinnustaðinn.

Nánari upplýsingar eru að finna hér á heimasíðunni. Einnig er hægt að hafa samband við Hjálmar G. Sigmarsson ráðgjafa á Stígamótum: [email protected]

#

DAGSETNINGAR

15. og 22. febrúar og 2023

#

STAÐSETNING

Stígamót, Síðumúla 23, 108 Reykjavík

#

TÍMASETNING

kl. 17:00 – 20:00 

#

ÞÁTTTÖKUGJALD

15.000 kr. 5000 kr. fyrir námsfólk