Netnámskeið – Framhaldsskólar og félagsmiðstöðvar

Netnámskeið – Framhaldsskólar og félagsmiðstöðvar

NET NÁMSKEIÐ FYRIR KARLKYNS KENNARA OG STARFSMENN Í FRAMHALDSSKÓLUM OG FÉLAGSMIÐSTÖÐVUM

Dagsetningar: Mánudagana 13., 20. og 27. febrúar

Tímasetning: 16:00-18:00

Net-námskeið, sem mun fara fram í gegnum Teams, með verkefnum í gegnum heimasíðu námskeiðsins á milli skipta. Mikilvægt er að mæta öll þrjú skiptin.

Þátttökugjald: 15.000 kr.

Stígamót, miðstöð fyrir brotaþola kynferðisofbeldis, bjóða upp á námskeið fyrir karla sem vilja taka þátt í baráttunni gegn kynferðisofbeldi, nánar tiltekið ofbeldi karla gegn konum, kynsegin einstaklingum og öðrum jaðarsettum hópum. Námskeiðið er hugsað fyrir karla sem vilja taka umræðuna um kynbundið ofbeldi í sínu umhverfi, t.d. í vinahópum, fjölskyldu og vinnustöðum. Um er að ræða ítarlegt námskeið þar sem lögð er áhersla á að skoða fjölbreytt viðfangsefni sem varða þennan málaflokk með sérstaka áherslu á kynferðisbrot og framhaldsskóla.

Stígamót hefur frá upphafi lagt áherslu á að öll umræða um kynferðisofbeldi sé brotaþolavæn, þ.e. að tekið sé mið af reynslu og þörfum þeirra sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi. Þannig að baráttan gegn kynferðisofbeldi, gegn nauðgunarmenningu felur í sér að skapa nýja menningu, þar sem brotaþolar upplifa stuðning og að eiga rétt á að leita sér hjálpar og réttlætis. Menning sem einnig kallar og styður gerendur ofbeldis til að taka ábyrgð á því ofbeldi sem þeir hafa beitt.

Á námskeiðinu verða eftirfarandi þemu tekin fyrir: birtingarmyndir kynferðisofbeldis, afleiðingar kynferðisofbeldis, kynjakerfið, karlmennskur, klámmenning, nauðgunarmenning, brotaþolavæn skóla- og vinnumenning, umræðan um gerendur og Sjúkást átakið.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni, einnig er hægt að senda erindi á Hjálmar G. Sigmarsson ráðgjafa á Stígamótum: [email protected]

Þátttökugjaldið er greitt við skráningu. Við hvetjum þátttakendur til að athuga styrki frá stéttafélögum og atvinnurekendum.

Fyrir vinnustaði: Það er hægt að skrá starfsmenn á námskeiðið með því að senda póst á  [email protected]. Einnig er boðið upp á að senda reikning beint á vinnustaðinn.

#

DAGSETNINGAR

13., 20. og 27. febrúar

#

STAÐSETNING

Net-námskeið, sem mun fara fram í gegnum Teams, með verkefnum í gegnum heimasíðu námskeiðsins á milli skipta.

#

TÍMASETNING

kl. 16:00 – 18:00 

#

ÞÁTTTÖKUGJALD

15.000 kr. 5000 kr. fyrir námsfólk